Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir nýdoktor við verkefnið hefur síðan í lok apríl safnað viðtölum við fjölskyldur víðsvegar um landið. Í byrjun sumars fór hún hringinn í kringum landið að taka viðtöl en hún hefur einnig farið styttri ferðir á afmörkuð svæði á landsbyggðinni.
Dagskráin í hringferðinni var þétt. Rannveig tók yfirleitt mörg viðtöl á dag og ferðaðist víða enda er sérstök áhersla verkefnisins að fá innsýn í reynslu fjölbreyttra fjölskyldna, víða á Íslandi.
Það sem stendur upp úr eftir ferðina segir Rannveig að sé náttúran, ótrúleg gestrisni og magnað fólk.

„Á nokkrum stöðum fylltist ég einhvern vegin lotningu og smæð yfir stórbrotinni náttúrunni. Ég varð virkilega auðmjúk yfir náttúrunni. Fjallasýnin og harkan í landslandinu var víða þannig að mér fannst ég einhvern veginn vita minn stað sem pínulítil písl af mannveru inni í þessu landi. Svo var svo fallegt að heyra fjölskyldur lýsa lífinu þarna á stöðum þar sem ég hafði kannski búist við lýsingum af hörkunni og erfiðleikunum tengdum því að búa langt frá þjónustu en í staðinn var það sem þau lýstu helst forréttindin að fá að búa þarna. Sem mér fannst bæði merkilegt og fallegt.“
Rannveig segist hafa fengið dýrmæta innsýn í þekkingu og reynslu fólks á landsbyggðinni af því að lifa sjálfbærara og um margt hæglátara lífi, búa í sterkara samfélagi og jafnvel eiga kost á aðgengilegra skólakerfi. Hún segir jafnframt að henni hafi þótt sorglegt hvað sú þekking og reynsla væri oft vannýtt á höfuðborgarsvæðinu.
Rannveig bætir við:
„Það er svo mikið til af mögnuðu fólki sem er að leggja sig fram og taka skellinn fjárhagslega og álagslega af því að það vill búa í hæglátara samfélagi og af því það vill hafa hlutina sjálfbærari. Þó það sé erfitt, þó það kosti það að börnin sitji í skólabíl marga klukkutíma á dag og þau búi langt frá alls konar þjónustu. Þó að það kosti það að þurfa að skutla og sækja í tómstundir. Þó að það kosti það að þurfa að senda frá sér unglingana sína í skóla í annað sveitafélag og þurfa að borga himinháar upphæðir fyrir að fljúga til Reykjavíkur á íþróttamót.“
Það er ljóst að gagnaöflunin hefur hreyft við Rannveigu sem segist „þakklát og þreytt og meir“.
„Þetta er búin að vera mikil keyrsla, í bæði bókstaflegri merkingu og táknrænni. En alveg brjálæðislega áhugavert. Þetta er bara mjög magnað, þetta er magnað land og magnað fólk.“