Hugvísindaþing 2026

Angela Snæfellsjökuls Rawlings kynnti rannsóknir sínar á vegum verkefnisins Fókus á fjölskyldur í réttlátum umskiptum á málstofu samstarfsnetsins Climate Change and Affect á Hugvísindaþingi Háskóla Íslands, þar sem meginþemað var kennsluaðferðir í tengslum við loftslagsbreytingar og áhrif þeirra. Samstarfsnetið er enn í mótun en veitir möguleika á öflugri samvinnu á þessu sviði.

Skipuleggjandi málþingsins var Ole Martin Sandberg, nýdoktor í heimspeki við HÍ, en auk þess voru þátttakendur frá rannsóknasetrum HÍ í Þingeyjarsveit og á Höfn, Háskólanum á Bifröst, Listaháskóla Íslands, sem og sjálfstæðir fræðimenn.

Efni fyrirlestranna var margvíslegt: kennslufræði á tímum umhverfiskrísu (Helga Ögmundardóttir), gróður og samfélag (Gunndís Ýr Finnbogadóttir og Mariana Lucia Tamayo), jöklatengsl (Þorvarður Árnason og Angela Snæfellsjökuls Rawlings), réttlát umskipti (Jean-Rémi Chareyre), örvænting og róttæk von í meir-en-mennsku samhengi (Ólafur Páll Jónsson og Rán Flygenring), og einnig visthverfar bókmenntir og sýningarstjórn (Bergsveinn Þorsson og Thomas Pausz). Í kynningu sinni á verkefninu Fókus á fjölskyldur í réttlátum umskiptum sagði Angela Snæfellsjökuls Rawlings frá yfirstandandi rannsókn sinni á bókmenntum og kvikmyndum þar sem hlutverk fjölskyldna í umhverfistengdum málum eru til umfjöllunar.

Þú gætir haft áhuga á . . .

Kynningarviðburður fyrir fræðimenn og almenning í Sögu

Boðið var til opinnar kynningar á helstu áherslum rannsóknarverkefnisins Fókus á fjölskyldur í réttlátum umskiptum þann 9. október í nýuppgerðu húsnæði Sögu við Hagatorg. Farið

Opinn fundur með The Climate Crisis and Affect netverkinu

Í júní síðastliðnum hittu Utsa Mukherjee, Auður Magndís og Rannveig meðlimi í netverkinu Climate Crisis and Affect á opnum fundi. Fundurinn tengdi saman verkefnið Centring

Rannsaka hlutverk fjölskyldna í loftslagsaðgerðum

Fræðimenn við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Rannsóknasetur HÍ í Þingeyjarsveit og Brunel-háskóla í London hlutu á dögunum 50 milljóna króna styrk frá Bresku akademíunni til rannsókna